Réttsýnn og sanngjarn maður
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 229161
27.01.2010 11:00:52 / maze

sagan endalausa...

http://mbl.is/mm/sport/handbolti/2010/01/27/ragnar_samdi_vid_bad_neustadt/

Næsti kafli: Ævintýri í landi Germana!

Hlakka mikið til að fylgjast með 7-10 mörkum í leik ásamt varnarleik sem óaðfinnalegur er. Ekki hefur hinn virti fréttaritari af Fréttablaðinu enn fjallað um málið né er Helgi Seljan kominn á bragðið en við bíðum spennt eftir fersku og brakandi útvarpsviðtali. Ljóst er að ekki tókst leikmanninum að fara í AHF. Að öllum líkindum hefur hann hafnað einhverju stærsta tilboði í sögu íslensk handbolta. Það þarf nú að fara taka þess AHF-menn í gegn.

Óska ég leikmanninum innilega góðs gengis.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2010 10:20:31 / maze

Toppmaður

Afar áhugavert viðtal við mikinn snilling. Ég kann vel við fólk sem segir það sem því finnst og segir hlutina ekki síst eins og þeir eru. Andri Snær er dæmi um slíkt.

Draumalandið er frábær mynd þó bókin sé enn betri.
Endilega skoðið þetta myndband:

http://www.youtube.com/watch?v=GiqqWayakoU

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2010 12:25:13 / maze

Sá fremsti...

.... í sögu mannkyns.

http://www.youtube.com/watch?v=aWRfL8ADvpE
Trailer úr myndinni The Expendables. Sem verður eflaust ein af betri myndum sögunnar.

http://www.dailymail.co.uk/tvshowbiz/article-1232958/Dont-day-job--Sylvester-Stallone-tries-hand-fine-art-mixed-results.html
Stallone sýnir að hann er besti og fremsti listamaður sögunnar. Picasso, Manet og Von Gogghgg og þetta hyski kemst ekki í hálfkvisti við hann.

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2010 08:48:17 / maze

Vitley....

Einmettht, nóg er til af þeim.
Þar sem ég er afar fréttaþyrstur maður þá les ég mikið af fréttasíðum og mbl.is er ein þeirra. Þar er hægt að "blogga við fréttina". Ekki nenni ég að lesa þau misgáfulegu blogg. En... ég skoða stundum fyrirsagnirnar og hlæ, hneykslast eða furða mig á þeim þessum fyrirsögnum. Þar gefur að sjá fyrirsagnir á borð við "Steingrímur á leið til fjandans með landið", "Jóhanna leggur sig fram við að gera okkur að öreigum", "Vinstri stjórnin á að skammast sín fyrir að vera ekki búin að bjarga okkur". Segi það enn og aftur. Tjáningarfrelsi á ekki að vera óheft, það er augljóst að það ráða ekki allir við það. Hvort sem um ræðir þessar fyrirsagnir eða margar jafnvel enn heimskulegri og rýrar af innihaldi.
Mæli ég með því að aðdáendur mínir skoði aðeins hvað er verið að blogga um fréttirnar því oft telur fólk sig hafa lausnirnar. Sumir trúa því t.d. að Sigmundur Davíð þekki norskan þingmann sem sé til í að lána Íslandi milljónir milljarða án skulbindinga en Jóhanna berst gegn þessu.
Þegar sá dagur kemur að ég ákveði að treysta yfirstéttarlýð eins og honum og Bjarna Benediktssyni er sá dagur sem lóga ætti mér.

Nú var t.d. Þorgerður Katrín (sem ég tel næst heimskasta ráðherra í sögu þjóðar okkar) að segja um helgina að ekkert væri til fyrirstöðu fyrir stjórnarflokkana að ná saman þannig að þá þyrfti ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um ICesave. Til hvers var þá alltaf þetta vesen? Mikið eru þetta mikil fí.......
En ég ætla að reyna að finna grein um þetta. Eflaust er búið að "blogga um þá frétt" eitthvað á þessa leið:
Þorgerður er kona sem hugsar um hag þjóðarinnar
Hún gleymir okkur ekki
Og bla......

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2010 09:25:08 / maze

Fáviti

http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2010/01/14/haiti_buar_somdu_vid_djofulinn/

Menn mega kalla þetta ómálefnalegt en mér er sama. Þetta er fáviti. Trúarbrögð skaða ekki sem sagt? Nei nei einmetthtt ekki!

Það er viðbjóðslegt að einhver geti haldið svona hlutum fram og komist upp með það. Þetta getur þessi maður einungis gert í krafti og ekki síst í skjóli trúar.

Hreinn og beinn viðbjóður.

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2010 09:10:43 / maze

Brandari

http://vikudagur.is/?m=news&f=viewItem&id=5067

Já þetta er brandari.
Sú firra er afar skæð í íslensku samfélagi þessa tímana að afrek innalands eru merkilegri en árangur á alþjóðavettvangi.
Fyrir stutt gekk Árborg (Selfoss) framhjá Ragnari Jóhannssyni í vali á íþróttamanni síðasta árs í því sveitarfélagi og nú gera Akureyringar það líka í tilfelli Odds Gretarssonar. Það er það sem er brandari.
Skoðum málið aðeins.
Báðir komast á verðlaunapall á heimsmeistaramóti í sumar.
Báðir voru lykilmenn í landsliði Íslands.
Ragnar er markahæstur í sinni deild hér á landi og leikið frábærlega.
Oddur hefur verið einn besti leikmaður Íslandsmótsins það sem af er.
En nei, það að  setja Íslandsmet, það að leika í neðri deild á Íslandi er merkilegra.
Þetta er til skammar og eiga menn að biðjast afsökunar á þessu rugli.

Ég legg til að handknattleiksdeild Selfoss og AHF neiti að tilnefna úr sínum röðum fyrir þetta val næst er það verður haldið.

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2010 08:38:34 / maze

Sagan heldur áfram...

Það er ekki við öðru að búast en að sagan halda áfram. Nú fyrst er þetta orðið forvitnilegt. Sjá hér: http://visir.is/article/20100112/IDROTTIR02/918696907/-1
Það eru engin smálið sem um ræðir og alveg ljóst að 7-10 mörk í leik bíða handan hornsins. Einhver alfágaðasti blaðamaður sögunnar mun þá geta fylgst vel með og flutt okkur þyrstum aðdáendum æðisgengar fréttir af hetjudáðum.

Samkvæmt Vikudegi í síðustu viku (eftir því sem ég best man) auglýsir leikmaðurinn að hann vilji helst leika með Akureyri handboltafélagi. Ekki skil ég hvað forráðamenn þar eru að hugsa að halda að sér höndum í svona málum. En svona er þessi bransi. Ef menn eru ekki tánum þá missa þeir stóru bitana.

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.01.2010 09:21:20 / maze

Draumur

Ég á kvikmyndina Draumalandið á DVD og horfði á hana fyrir stuttu. Afar góð og fróðleg og það sem mér líkar best er hve Valgerður og hennar skósveinar eru sýndir í réttu ljósi. Það er með öllu óskiljanlegt hvernig hægt er að styðja þessar framkvæmdir ef fólk kynnir sér málin ítarlega. Því miður gera það fæstir.
Rök eins:
- Mikil uppbygging
- Atvinnuástand
- bla
Þau virka ekki. Einfaldlega vegna þess að þarna standa tómar blokkir og hús, sífellt fer fólki þarna fækkandi og skuldir Landsvirkjunnar (fyrirtæki sem við Íslendingar eigum) eru svo rosalegar að það nær engri átt.

Kannski ætti ég frekar að fara týna fjallagrös og koma á 21.öldina eins og nokkrir vanvitar hafa bent mér á?

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2010 08:44:08 / maze

Vondu Grikkirnir....

Ég er mikill aðdáandi ýmissa hluta og það að hlutirnir séu réttir er einn þeirra. Fylgist ég nokkuð vel með Íslendingum er leika utan okkar ástkæra heimalands. Það hefur þó komið í ljós að fleiri mættu gera það sama og ég, sér í lagi ef þeir vinna við það að skrifa um. Hef ég komist að því að veruleikafirring er algengt vandamál í íslensku samfélagi.
Þessi grein hér er ansi merkileg: 
http://www.visir.is/article/2009261717067
Merkileg fyrir þær sakir að einhvern veginn efa ég að menn fari til hinnar geysilega sterku deildar í Grikklandi ef þeim til boða stendur að leika í Noregi og hvað þá Spáni.
Svo kom þessi grein hér fyrir tæpum mánuði: 
http://visir.is/article/20091210/IDROTTIR02/824932830/-1
Upp úr þessari grein stendur: „Ég er verulega ánægður með dvölina hérna. Þetta er búið að vera vonum framar og þá sérstaklega handboltinn. Liðið er sterkara en ég bjóst við og deildin er það líka. Ég vissi ekkert við hverju væri að búast og hélt kannski að ég hefði gert vitleysu með því að hafna hinum tilboðunum," segir Ragnar Snær.
Ansi merkileg fyrir þær sakir því 30.des (aðeins 20 dögum seinna) kom þessi ódauðlega frétt:
http://www.visir.is/article/2009617705760 Ævintýrinu mikla er lokið, allir vondir og sviku. En ég ætla ekki að velta mér of mikið upp úr þessu. Þó afar fyndið sé á margan hátt. Heldur ætla ég að skoða annað mál frekar.

Það er þetta: "Ég er að skora á milli 7-10 mörk í hverjum leik". Þetta fannst mér ánægjulegt að heyra, það gleður mig alltaf er Íslendingar standa sig vel í handboltanum utan landsteina. Ég reiknaði með að hann hlyti því að vera með um 8-9 mörk að meðaltali í leik. Það gladdi mig enn meira þar sem umræddur leikmaður hefur nú ekki gert gramm handboltalega séð á Íslandi undanfarin ár.
Ég fór því og kannaði málið. Þar kemur í ljós að leikmaðurinn er 4. markahæsti leikmaður síns liðs sem situr í næstneðsta sæti deildarinnar. Liðið hefur aðeins unnið það neðsta. Leikmaðurinn hefur gert 34 mörk í 11 leikjum (3,09 í leik). Það er afar erfitt að gera 7-10 mörk í hverjum leik ef maður hefur gert 34 mörk í 11 leikjum að mér skilst. Þessar upplýsingar er að fá hér: 
http://www.handball.org.gr/en/ 
Merkileg ummæli þar sem leikmaðurinn hefur einungis átt tvo leiki af níu þar sem hann skorar á bilinu 7-10 mörk (7 einu sinni og 9 einu sinni).
Ekki ætla ég að taka það af honum að 13 mörk í Evrópukeppni er frábært (en ekki 14 mörk eins og kemur fram í greininni. EHF segir 13).

Ég vona að leikmaðurinn finni sér annað lið hið snarasta því augljóst er að 7-10 mörk í leik eru trygg fyrir utan afburðar varnarleik.

Óska öllum gleðlegs árs og vona að fólk sé mér þakklátt fyrir að koma með réttar upplýsingar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2009 16:56:37 / maze

...

Rakst á þetta: 
Heaven is Where: The Police are British, The Chefs are Italian, The Mechanics are German, The Lovers are French and It's all organized by the Swiss. Hell is Where: The Police are German, The Chefs are British, The Mechanics are French, The Lovers are Swiss and It's all organized by the Italians.

Fannst helvíti mikið til í þessu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2009 21:28:20 / maze

Álver eða sængurver?

http://www.visir.is/article/20091208/SKODANIR/541494982

Nei hvað er hann að spá þessi?
Ég sem hélt að álver væri það eina í stöðunni?
Landsvirkjun er nefnilega alls ekki farin á hausinn vegna Kárahnjúkavirkjunnar!

Það er ljóst að Framsókn þarf að taka þennan gaur í gegn og reyna að skóla hann aðeins til!

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2009 16:20:59 / maze

Hooters

Það virðist fara fyrir brjóstið á sumum að ég eyði athugasemdum þeirra. Einföld skýring er á þeim gjörningi mínum. Reglurnar er ég setti hér eru nefnilega afar ljósar, eða ættu að vera það.
Menn þurfa að greina frá hverjir þeir eru.
Ekkert skítkast eða ærumeiðingar,
Athugasemdir þurfa að fjalla um málefni greinarinnar.

Þetta ætti að skýra eitthvað fyrir einhverjum.
Takk fyrir.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2009 09:11:09 / maze

Tík

Stjórnmál eða pólitík eftir því sem menn vilja hafa það er stundum að brjótast um í mér. Það eru vissulega afar merkilegir tímar í gangi í íslensku þjóðfélagi svo ekki sé fastara að orði kveðið. Það er þó margt sem mér finnst standa upp úr. Til dæmis það að enn er fólk sem væri tilbúið að drekka hlandið úr Davíð Oddssyni. Slík er foringjadýrkun sjálfstæðismanna til handa Davíðs að ég þekki vart dæmi um annað nema þegar ónefndur Austurríkismaður var dýrkaður á 20.öldinni á Þýskalandi. Auðvitað kenni ég í brjóst um sjálfstæðismenn þar sem þeir eru foringjalausir. Það er enginn til að hugsa fyrir þá og segja þeim hvað þeim á að finnast hverji sinni um hvaða málefni hverju sinni.

Þetta er nefnilega afar merkilegt. Nú væla margir framsóknar- og sjálfstæðismenn um skattahækkanir sem og vegna hækkana á þessu og hinu. "Það eina sem vinstri stjórnir gera er að hækka skatta!". Sem er reyndar frekar merkilegt vegna þess að þetta fyrsta vinstri stjórnin á Íslandi nokkurn tímann og hún hefur varla lifað eitt ár enn. Auðvitað er enginn sáttur við hækkanir á einu eða neinu. En halda menn að þetta fyllerí í boði B og D lista sé að kostnaðarlausu? Fylgja ekki fylleríum iðulega timburmenn? Jú, það er nefnilega eimmethth svo. Mér finnst nefnilega sjálfstæðimenn minna mig á brennuvarg, sem hefur kveikt þetta þvílíka bál en reynir af alefli að stöðva slökkvistarfið og björgunarfólk.

Tökum sem dæmi Icesave. Það er búið að binda okkur þar. Það hefur ekkert með núverandi ríkisstjórn að gera. Ég endurtek. Það er BÚIÐ að binda okkur þar með samningnum við AGS sem og með neyðarlögunum. Menn vissu laveg hvað þeir voru að gera þessir andsk.. bankamenn er þeir stofnuðu Icesave rþátt fyrir að vera þá nánast gjaldþrota.

B og D listar megar þó eiga eitt í stjórnarandstöðu. Þeir eru með lausnina. Viti menn, það er álver, en ekki hvað? En hvaðan eigum við fá orkuna? Nei er það ekki hægt? Er ekki búið að spá í það? Æ andskot... óheppni var það nú. Bjánar þakka þér!

Tilboð mitt stendur enn um að taka að mér einræðisvald og er ég búinn að skipa í ráðherraembætti sem og fjölga smærri og innri ráðunneytum.

Að lokum hvet ég fólk til að horfa á silfrið síðan í gær. Venjulega horfi ég ekki á það en fyrst Jón Baldvin var þarna ákvað ég að horfa. Mér fanns Jón góður en viðmælandi hans Styrmir Davíðssleikja Gunnarsson var ekki eins góður. Davíð Oddsson var nefnilega að gefa út bók en Styrmir setur nafn sitt við hana því enginn keypti sennilega bókina hans Dabba, Svo er a.m.k. mín trú.

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2009 08:53:08 / maze

sérstakt

Hef stundum verið að velta því fyrir mér hvað er að ske eins og einn góður maður orðaði það. Nú er ég nokkuð duglegur að fara í ræktina og tek þar oftast um eina klst á hjólinu ásamt fleiri æfingum. Þá kemur augnpot minn sér vel sem og gott hugmyndaflug. En ekki síst dreifi ég huganum er ég hjóla með því að horfa á þessa sérfræðinga sem mæta þarna til að æfa. Eða, til að gera sig að athlæg því slíkar eru aðferðirnar sem beitt er við sumar æfinganna. Nú kemur einn sérfræðingurinn stundum í gallabuxum, hettupeysu, með skyggnishúfu og jafnvel með úttroðinn trantinn og fer á hlaupabrettið. Ekki beint gáfaðasti maðurinn á svæðinu verður að viðurkennast. Svo er eflaust bara setið í sófanum heima um kvöldið í sömu fötunum. Svo er þarna hópur sem ég kalla heilalausu þrenninguna en gallabuxnagaurinn einmetth tilheyrir þeirri vösku sveit.

Ekki má gleyma Lalla tattú sem er alveg með það á hreinu að hann sé aðakallinn sem og hvítbuxna heilaskemmdin. Mikki mús er þarna oft líka og er ekki mikill afgangur af.

Aftur á móti er Stulli bakari svalasti maðurinn á svæðinu og ætti að vera búið að aðla hann fyrir löngu. Auðvitað ber ég af í fríðleika og almennum þokka þarna í stöðinni en ósanngjarnt væri að fara fram á að aðrir stæðu mér jafnfætis hvað það varðar.

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2009 11:39:54 / maze

Vælukjóar...

http://www.mbl.is/mm/sport/frettir/2009/11/10/stormot_i_frjalsithrottum_a_akureyri_2010/

Finnst þessi frétt helvíti skemmtileg. Hún er skemmtileg sérstaklega ef þið nennið að skoða bloggin um fréttina. Þar væla tveir herramenn vegna þess að völlurinn er kallaður Akureyrarvöllur. En hann er ekkert annað. Þetta er ekki Þórsvöllur frekar en rassinn á mér er banjó.

Þetta er auðvitað viðkvæmt mál fyrir Þórsara, ég geri mér fullkomlega grein fyrir því. Þeir eru búnir að átta sig á því hve viðurstyggilega og óendanlega heimskuleg þessi framkvæmd er en vilja ekki með neinu móti horfast í augu við það, hvað þá að viðurkenna!

Þeirra hugsjón (ef hún er þá einhver) hefur beðið skipsbrot. Þar á ég við snillinga sem börðu þetta í gegn.

Við skulum ekki gleyma því að íþróttafélagið Þór HAFNAÐI því að taka frjálsar inn á sitt svæði á AÐALFUNDI félagsins sem er í raun, eða ætti að vera loka svarið. En, nei, menn kusu þetta inn bakdyramegin ÓLÖGLEGA ef menn vilja fara eftir lögum íþróttafélagsins Þórs og því fór sem fór.

Framkvæmd sem átti síðan að kosta um 300 milljónir fór yfir milljarð og skilst mér að hækki enn. Það er ótrúlegt að skattborgarar skuli sætta sig við svona bruðl og rugl. Eyða rúmlega milljarði í þetta andsk.. kjaftæði.

Takk fyrir mig....

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 44
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.